Klasi er þekkingarfyrirtæki á fasteignamarkaði sem sérhæfir sig í fasteignaþróun, fasteignastýringu og rekstri fasteigna. Klasi veitir einnig sérfræðiráðgjöf vegna fasteignaverkefna. Þjónusta Klasa byggir á víðtækri reynslu starfsmanna auk rannsókna og greiningu félagsins á fasteignamarkaðinum.

Klasi hefur nú yfir 300.000 m2 fasteigna í stýringu og þjónustu. Um er að ræða allar gerðir fasteignaverkefna og fasteigna s.s. verslunarhúsnæði, skrifstofuhúsnæði, iðnaðarhúsnæði ásamt því að annast stýringu leigufélaga á íbúðamarkaði.